09.01.2006 20:03:29 / Ragnarr

Afmæli



Síðan er orðin 600 daga gömul :haha:



» 6 hafa sagt sína skoðun

02.01.2006 15:54:25 / Ragnarr




>:l





» 5 hafa sagt sína skoðun

27.11.2005 16:19:12 / Ragnarr

idol og deadlift

Haha ég er leim, gamalt blogg af kjallaranum, en hey, þetta er nýtt blogg hér ;)

Það var skellt sér á NASA í gær. Ég, Rikki og Linda Mjöll fórum þangað sem gestir hennar Sjafnar sem er einmitt systir hennar Lindu. En svo skemmtilega vildi til að allir selfyssingarnir voru í þessum hópi þannig við gátum ekki lent á betri hóp til að styða á NASA. Vorum frekar stressuð áður en við komum því við vissum ekki hvernig við áttum að komast inn því við vorum ekki með neinn boðsmiða eða neitt. En síðan komum við þarna fyrir utan og löbbuðum bara inn. Það hefði sem sagt bara hvaða geðsjúklingur sem er getað komið þangað og ruðst inn í beina útsendingu og sagt að það væri heimsendir í nánd. Það var stuð að horfa á Arrested Development og Punk'd á risa breiðtjaldi, mjög öðruvísi. Björn Daði var með lang stærsta stuðningsliðið þarna af öllum selfyssingunum. Ingó og Sjöfn stóðu sig mjög vel, og Björn Daði var í töff jakkafötum, segjum það bara.

Sátum alveg við sófann. Svo eru þau þarna final 3 í stólunum.

Og í dag var skellt sér á íslandsmótið í réttstöðulyftu. Ég mætti þangað til að hveta frænda minn hann Jón Bónda og að sjálfsögðu vann hann sinn þyngdarflokk. Hann lét ekki einhverja ræfla eins og Gilzenegger vinna sig. Þess má geta að Gilzenegger tók mynd af okkur, sem ég skil ekki alveg því hann var ekkert mikið í því þarna, erum við næstu tískufórnarlömb hans ? En já, svalt mót og þéttir gaurar.

 

Nokkrir af þátttakendunum. F.v Tvífari Elton John, Þráinn selfyssingur, tvífari Sylvester Stallone og Egill Gilzenegger.

Jón Bóndi, íslandsmeistari í 90kg flokki.


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.10.2005 18:47:00 / Ragnarr

Enn og aftur birti ég blogg af kjallaranum.

Hey, núna erum við algjörlega búnir að klúðra þessu. Við sem ætluðum að blogga 2x á dag. Ekki nógu og virkir. Ég vil sjá blogg frá hverjum einasta Kjallarameðlimi hérna í hverri viku ! Þá erum við allavega pottþéttir með 1.28 blogg á dag. En að öðru. Mér finnst fátt skemmtilegra en að mála myndir á veggi, skrýtið áhugamál það ?

Fyrir nokkrum árum málaði ég tvær myndir af Bart Simpson á vegginn hjá mér og svo núna í fyrra þá málaði ég alla Bítlana á vegginn hjá mér. Tók það verk alveg 3 mánuði, enda var ég mjög latur á þeim tíma, jólafrí og svona. Og nú nálgast jólafríið og ætla ég ekki að vera algjörlega aðgerðalaus í því, nenni ekki að vinna. Þannig ég ætla mála nýja mynd á einn vegginn hjá mér. Stefni á það að mála plötuumslag Dark Side Of The Moon á vegginn. Verkið ætti ekki að taka eins langan tíma og Bítlamálverkið því það eru ekki miklir litir í þessu, en þetta er samt heill veggur.

Þetta er Bítlamálverkið mitt

Þetta er það sem ég stefni á að gera í jólafríinu


» 8 hafa sagt sína skoðun

26.10.2005 21:43:45 / Ragnarr

Dúndurfréttir

Ákvað bara að birta þetta blók hér líka svo það sé ekki alveg allt dautt hér ;) En ég er alfarið byrjaður að blogga á kjallaranum.

Skellti mér á tónleika í gær. Þetta voru svona tónleikar sem allir góðir tónlistarunnendur máttu helst ekki missa af, enda fékk ég að heyra það frá mörgum aðdáendum á 'veraldarvefnum' að það hafi verið eins og að missa ástvin og að missa af þessum tónleikum. Enda er það ekki oft sem Dúndurfréttir koma allir saman og á stóru sviði eins og þessu og spila best of Pink Floyd. Síðast var það nú bara í nóvember í fyrra, fyrir ári síðan. Þá bloggaði ég einmitt ÞETTA blogg, og virðist sem ég hafi bara verið hæstánægður með tónleikana þá. Tónleikarnir í gær voru bara mikið betri en þeir sem voru fyrir ári seinna. Einar orðinn mikið flínkari á gítarnum og fer léttilega í gegnum öll sólóIN hans David Gilmours og meira segja einu sinni með slitinn E streng ! Fengum líka eitt uppklappslag sem var Run Like Hell, en ég var búinn að bíða eftir því. Þeir taka Run Like Hell langbest.

Þarna eru þeir að spila Young Lust og Matti fer hamförum, hágæða mynd tekinn á Motorola v300.

Reifsneider sem er alltaf jafn ástfanginn af Dúndurfréttum.


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.10.2005 20:50:34 / Ragnarr

Under pressure

Skoðanakönnun

Á kjapinn að taka þátt í söngvakeppni ?

Já omg
 93%
Nei omfg
 7%

Fjöldi atkvæða: 46

---------------

Já það er ljóst, ég mun ekki taka þátt í söngvakeppninni, ég hefði viljað sjá að minnsta kosti 98% segja Já, ef ekki 100%. Rikki verður því miður að finna sér annan söngfélaga, en ég get svo sem tekið lagið af og til með honum Rikka. Það má með sanni segja að ég hafi verið under pressure seinustu daga útaf þessu.

It\'s the terror of knowing Rikki
What this world is about Rikki
Watching some good friends Rikki
Screaming let me out! Ragnarr
Pray tomorrow takes me higher Ragnarr
Pressure on people Rikki/Ragnarr
People on streets Rikki/Ragnarr

Ég var Freddie Mercury og Rikki var David Bowie, við erum sko alveg búnir að æfa þetta síðan í Mars held ég.

Sjást þessir menn aftur saman á sviði ?


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.10.2005 23:04:31 / Ragnarr

25 og 27

Já gott fólk ! Dúndurfréttir eru að fara halda afmælistónleika í næstu viku ! Þeir ætla að halda heila 4 tónleika á 2 dögum sem er örugglega met. Fór síðast á tónleika með þeim í Austurbæ í nóvember í fyrra og voru það með betri tónleikum sem ég hef upplifað, þó ég hafi fengið ömurleg sæti, en það skipti engu máli þarna hvar maður sat.

Dúndurfréttir á tónleikunum í fyrra

Núna er maður bara að blasta Dúndurfréttir í góðum fíling því ég ætla að skella mér á tónleikana sem þeir halda á þriðjudagskvöldinu en þá muna þeir einungis taka Pink Floyd lög, og þá best of. Lífið getur ekki verið betra núna hehe :haha:

Til hamingju Dúndurfréttir með 10 ára afmælið !!!!

np; Dúndurfréttir - Shine on you crazy diamond

dundurfrettir.blogspot.com


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.10.2005 16:06:48 / Ragnarr

Lófatölvanmar

Ég er aftur búinn að grafa upp lófatölvuna góðu ! Þetta tæki er einstakt, það er hægt að gera allt í þessu en ég nota hana bara til að sjá hvað ég á að læra heima, svo virðist sem að ég hafi bara áhuga á einhverju sem er á stafrænuformi.

Ég hef hana bara hérna á borðinu hliðiná tölvuskjánum þannig ég hef hana beint fyrir framan mig og sé ætíð hvað skal gera fyrir morgundaginn. Þetta virkar helvíti vel, maður nennir ekkert alltaf að vera kíkja í einhverja bók ofan í tösku til að sjá hvort það sé eitthvað að læra heima, maður getur líka auðveldlega gleymt því.

En já, lófatölvu á línuna !

Kjallarinn !!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.10.2005 04:12:52 / Ragnarr

ing bakk

Jáá ballhelgin svokallaða liðin, svaka ball, alveg svakalegt, svakalegar 30mínútur. Allavega, ég, Palli, Egill, Krissi og Arnþór byrjuðum föstudagskvöldið á því að fara út að borða á Hróa og skelltum við okkur allir á lambasteik, mjög gott lamb miðað við að þetta sé pizzastaður. Egill strax orðinn haugafullur á Hróa.

Héngum hjá Agli bara um kvöldið en það stóð ekki lengi og skruppum við á slútt hjá FC Flóa sem var alveg ágætt bara, en ekki nógu og ágætt fyrir okkur þannig við færðum okkur til Esterar. Stöldruðum stutt við þar og þá fór ég að keyra fólk á ball. Sem ég btw er hættur framvegis. Án efa það leiðinlegast sem maður getur tekið sér fyrir hendur um helgar. Vanþakkláta fólk :haha:

Allavega, var ekki kominn á ballið fyrr en um eitt leytið eða eitthvað held ég vegna skutlerís og ýmiskonar vesens. En gat verið á ballinu í alveg 30mín og gaf bassaleikaranum five og hitti frú töff smáá á þessum tíma :haha:

En kvöldið snérist nú bara um að koma Agli heim til sín þar sem hann var orðinn ofbeldishneigður.

Egill sparkaði svolítið fast í bílinn sinn

En já, ekkert spes gærkvöld. Bætti smá úr skák í kvöld með því að fara í matarboð útí sumarbústað til mömmu og pabba og síðan í bíó á The Red Eye sem er btw léleg mynd. Mæli ekki með henni, sumt fólkið í henni er of rólegt miðað við aðstæður, fáránleg sum atriðin :haha:

En já, gaman á balli hjá ykkur ?

ps. Ný hrós dagsins
ps2. Ég held að Egill sé aftur orðinn eineltisbarn síðunnar ;)


» 47 hafa sagt sína skoðun

13.10.2005 22:40:43 / Ragnarr

Gítardraslwtf?!

Það fer að styttast í hrekkjavökuballið... er ekki fílingur í fólki fyrir það ? Ég fór reyndar ekki á ballið í fyrra, lét mér bara nægja fyrirpartýið heima hjá Rikka sem var stórskemmtilegt, hver man ekki eftir viftuatriðinu ? h0h0h0h0. Annars þá verð ég nú bara driver á morgun eins og vanalega, fæ kaggan hans Egils, vil minna fullt fólk á að númerið mitt er öhh 785-3566, setjið það núna í skránna ! Ætli skólinn verði skreyttur á morgun eins og hann var í fyrra, allavega vona ég það, manni leið hálffáránlega í skólanum í fyrra, það var eins og maður væri kominn í eitthvað djöfladýrkendasamkomuhúsnæði.

En að öðru, gítararnir mínir. Ahhhh gítararnir, hvar væri ég án þeirra. Ekki vissi ég að það væri hægt að elska dauðann hlut svona mikið, en sú kenning hjá mér hefur verið afsönnuð.

Fender Stratocaster t.v. (Áhrifavaldurinn spilar einungis á svona gítar), Ibanez Roadstar Series (ábyggilega yfir tvítugt) og Kassagítarinn sem ég á reyndar ekki en er með í láni til að heyra soundið í nokkrum Pink Floyd lögum ;)

Kristinn er ekki enn kominn með kvenmann þrátt fyrir stanslausar auglýsingar af minni hálfu. Maðurinn er myndarlegur og er hverrar konu gullmoli (veit ekki hvað ég er að segja). En hann er að reyna selja bilinn sinn.

Ég vil líka minna á blog.central.is/gryfjan/ sem virðist vera þróast útí vinahópblogg eins og er í tísku núna. Vil einnig minna á könnunina, gestabókina og hrós dagsins.

Og já, þess má geta að það verða hópslagsmál á ballinu vegna bannergerða minna. Godfellas menn voru ekki ánægðir með að ég gerði banner fyrir fleirri en þá eina og þeir ætla í mig, Grúppu menn ætla hinsvegar að verja mig en Metros menn sitja hjá.


» 14 hafa sagt sína skoðun

10.10.2005 21:59:44 / Ragnarr

Forsetaákeyrsla !

Forsetinn hatar mig það er klárt mál ! Allavega þá svínaði ég fyrir forsetann á Laugardaginn inní hringtorgið hjá brúnni, aðeins verra. Þetta var svartur jeppi, þvílíkt flottur, og með einkanúmerið 3 og svo skjaldamerki hliðina, og kjappinn var að sjálfsögðu með einkadriver, forsetinn hefði örugglega þrykkt á mig hefði hann verið að keyra. Ég á ekki að vera með bílpróf :haha:

En vá, pælið í því eftir nokkur ár þegar maður fer að hugsa aftur til áranna í framhaldskólanum hvað maður sér þá eftir því að hafa ekki staðið sig betur í skólanum þegar maður gat 8| Ég gæti staðið mig mikið betur núna, en áhrifanna verður ekki vart fyrr en eftir nokkur ár þannig mér er alveg sama :haha:

En þetta blogg er tileinkað Krissa. Krissi er piparsveinn Íslands um þessar mundir, við erum að tala um að kjappinn á glæsilega, þá meina ég stórglæsilegan bíl og samt er hann ekki kominn með bílpróf, hann fær það í desember stúlkur ! Hann hætti einnig í skólanum á þarseinustu önn en kom svo aftur ári seinna og er að slá í gegn í náminu núna, geri aðrir betur ! Krissi krissi krissi blog.central.is/krisseh/ ! Stórmenni !

Hvaða stelpa myndi ekki vilja vera ein með þessum manni í myrkvu herbergi ?

Svolítið lítið að gera í kvöld, hver fer að teikna mynd af sér með forsetanum ?

Machine Head - Descend the shades of night


» 10 hafa sagt sína skoðun

09.10.2005 14:13:29 / Ragnarr

Veistu ... neiiiii...

Margt hefur á daganna drifið ..(er þetta ekki annars skrifað svona ?)

Allavega, ég skellti mér á tónleika á fimmtudaginn. Það var ótrúlegt hvað manni fannst maður vera velkominn þarna þegar maður kom inní skólann. Fullt af síðhærðum gaurum þarna í útúrrifnum fötum, með málaðir í framan og alveg að deyja úr tregu. En allavega, það var næstum enginn þarna en svo þegar SIGN byrjuðu var kominn ágætis fjöldi þarna. Ragnar Zólberg er ekki töff. En já, keypti diskinn og hann var blastaður allan föstudaginn, frábær diskur hér á ferð, mæli með lögum 3, 6 & 8.

Föstudagurinn ? Ég held að ég vilji gleyma föstudagskvöldinu sem fyrst, en allavega, kjéééémur Rúnar :haha:

Skellti mér í brúðkaup í gær þar sem frændi minn var að gifta sig. Páll Óskar og Monika að performa í kirkjunni, og auðvitað mátti maður ekki klappa sem er asnalegt. En þetta var alveg fínasta skemmtun í veislunni, Skítamórall tók nokkur lög og síðan var þetta orðið bara að hálfgerðu balli þegar líða fór að kvöldi, en ég fór samt ágætlega snemma, ég er bara vanur að fara á undan öllum

En allavega, verð að skella þessu aftur með, þar sem allir eiga að horfa á þetta oft á dag: http://www.somethingawful.com/images/mspaint.swf

Og já, Rikki vill að ég taki þátt í söngvakeppninni með honum og þá munum við taka Under Pressure, ég Freddy og hann David, á maður að skella sér ? ;)

Til hamingju með afmælið John :*


» 10 hafa sagt sína skoðun

04.10.2005 22:33:29 / Ragnarr

En hvad er þarna uppi stúlka ?

Wow, við erum að tala um að allir hafi haft rétt fyrir sér í síðustu varaágiskun. Fyrsta sinn í sögu keppninnar !

En þessi dagur var hræðilegur, þetta hark fer illa með mann. Ég tapaði öllu í harkinu í dag, eitthvað í kringum 1200kr og svo skulda ég fullt, bæði fyrir harkpening og líka til að geta keypt mér mat í hádeginu, en peningurinn sem átti að fara í það fór í hark ;) Gummi Maniac lánaði mér fyrir mat og á hann hrós skilið fyrir það. (Vil minna á hrós dagsins).

Brúðkaup um helgina. Spurning um að fara gifta sig ? Hvað ætli heildarverðmæti allra brúðkaupsgjafanna er ?

En djöfull var gott að labba í skólann í morgun, langt síðan ég gerði það. Mæli með þessu ef þið hafið ekki prufað það, að labba.

Að lokum vil ég benda fólki á eina mestu snilldar flashclip sem ég hef séð á netinu, kannski smá einkahúmor ? En þið hljótið bara að fíla þetta.

http://www.somethingawful.com/images/mspaint.swf

Dabbi jóns fann linkinn fyrir mig, en línkurinn glataðist fyrir nokkru síðan


» 20 hafa sagt sína skoðun

02.10.2005 21:40:14 / Ragnarr

núna erum við að tala saman

Smá nördahelgi liðin. Pro allt föstudagskvöldið með Jóhanni, Rikka og Stebba og svo allt laugardagskvöldið með Jóhanni, Árna Magg og Stebba, það var svo sem fínt ;)

En hverjir sáu idolið ? Mér líst svo sem ágætlega á það sem er framundan, gaman að hafa Pál Óskar í dómnefndinni, hann getur stundum verið frekar asnalegur. Eins og þegar hann fór að slamma þegar gaurinn söng Nasty Boy. Það voru eiginlega bara lélegir söngvarar sýndir á föstudag, engir góðir sýndir, kannski voru bara allir lélegir, hver veit ?

Svo kíktum við Rúnar í bæinn á laugardag í fýluferð. Allavega, þá rötum við ekkert í bænum. Ætluðum í einhverja hljóðfærabúð að finna kassagítar handa Rúnari og ég rataði í eina búðina, en svo var samt ekki en við fundum hana samt á endanum, en þá fattaði ég að þetta var ekki búðin sem ég vildi fara í, en þessi var hvort sem er lokuð og við vorum orðnir nógu og pirraður og brunuðum bara heim.

Kíkti svo útí nýja sumarbústaðinn okkar áðan, vorum að fá okkur eitt stykki  :haha: Fínt að geta setið á pallinum eða legið í pottinum og horft á fólk spila golf. Geim í sumarbústaðagistingu í vetur ?

Hver á þessar varir ?

Egill, Sunna og Steinþór fá tvö prik fyrir að giska á rétt síðast. Guðný María átti varirnar :P


» 11 hafa sagt sína skoðun

28.09.2005 21:29:28 / Ragnarr

Uuuuundir bláhimni blíðsuuuumars nææætur

Bíllinn farinn, það er svo sem fínt. Fékk að finna fyrir því í leikfimi í dag. Vorum í fótbolta og ég fékk strax hlaupasting og var bara orðinn þvílíkt þreyttur, enda ekki búinn að labba neitt í heila viku. Svona getur maður orðið latur þegar maður hefur full afnot af bíl. En hvað er annars körfubolti ? Fór í þannig í dag og ég skil þennan leik ennþá ekki, fáránleg heit, leikur sem gengur útá að setja boltan ofan í einhverja körfu sem er í 50metra hæð. Held mig bara við blakið. En annars, ég held ég verði að skella inn vörum dagsins, fólk virðist hætta nenna lesa bloggið ef það sér engar nýjar varir þannig ég skelli þeim bara inn.

Hver á þessar varir ?

Og já, allir sem ég fékk lánað hjá í Gryfjunni til að spila hark mega láta mig vita hvað ég skulda þeim mikið.


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Leitarbox